Eins og svo margir aðrir á ég gæludýr. Ég á kött og mús, og þegar ég segi fólki það hlær það og segir “en sniðugt!” Ætli það sé ekki soldið sniðugt. :) Ég á kött sem heldur að hann heiti Kisa og svarta, nafnlausa mús. Músin er orðin gömul og ég þarf að fara að gefa henni nafn áður en hún fer til músahimna, því ef mús deyr nafnlaus fer hún til músahelvítis. Sem er ansi harkalegt, finnst mér… Þó að kötturinn sé alltaf feitur og saddur og má gera hvað sem hann vill er músin ekki eins glöð. Ég...