Nokkrum árum eftir fermingu þegar maður fer aðeins að hugsa um þetta, þá trúi ég alls ekki á guð. Þegar ég fermdist þá pældi maður ekkert í þessu, það fermdust nærrum því allir og maður gekk í gegnum þetta því þetta er eitthvað sem “allir” gera. Auðvitað var það gert meira fyrir gjafir og peninga en fyrir það að staðfesta trú mína. En þegar þú ert 14 pæliru lítið í því. Ég er trúleysingi með öllu.