Hversu djúp sem orð mín eru veita þau ekki nægar upplýsingar til að þú getir þóst vita eitthvað um mig. Mér finnst fáránlegt hvernig þú beinir þessum rökræðum að persónulegum málum frekar en umræðuefninu.
Mjög margt í samfélagi okkar er siðferðislega rangt. Td. kalla ég oft vini mína öllum illum nöfnum, þeim er alveg sama, það er samt sem áður siðferðislega rangt.
Ég held að þú skiljir mig ekki. Nenni þessu varla lengur. Ég er samt sammála þér í að aflétta banninu og stuðla í leiðinni að meira frelsi einstaklingsins.
Ég veit að þetta var afleiðingar bannsins, það sem ég meinti var að ef að almenningur hefur ekki neytt efnisins fyrir (sem á við um flesta þegar kemur að sterkari efnum), hvort að afleiðingar bannsins verði þau sömu. Mér finnst það ólíklegt.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..