Breska hljómsveitin Jethro Tull er væntanleg til Íslands í haust og kemur fram á tvennum tónleikum í Háskólabíói, 14. og 15. september. Sveitin hefur áður haldið tónleika hér á landi, árið 1992 á Akranesi, og Ian Anderson, forsprakki Jethro Tull, kom til Íslands og hélt tónleika á síðasta ári. Birgir Daníel Birgisson undirritaði nú í vikunni samninga um tónleika Jethro Tull við umboðsmenn hljómsveitarinnar fyrir hönd Performer ehf. Hljómsveitin var stofnuð árið 1968 og í henni eru ennþá...