Jæja, nú ætla ég að starta smá ljóðaleik. Hún gengur út á það að einhver byrjar á að semja ferskeytlu og sá næsti semur aðra sem byrjar á sama staf og sú fyrri endaði á. Munið að nota ljóðareglur. Ég byrja: Góðan leik ég í gagnið set, gakktu' að þeirri krísu. Ætla ég nú; ef ég get að yrkja góða vísu. Næsta semur ferskeytlu sem byrjar á “u” og svo koll af kolli.