Ferlega er maður svekktur yfir þessu enn eina ferðina. Selma og stöllur gerðu þetta með stæl þarna í Kænugarði en allt kom fyrir ekki. Ég gat ekki merkt nein misstök hjá þeim á sviðinu. Það má vel vera að falskur tónn eða feilspor hafi átt sér stað eða þá að klæðnaðurinn hafi ekki fallið í kramið hjá kjósendum. Selma var a.m.k. ekki með hettuna á hausnum. Moldavía, Ísrael, Noregur, Ungverjaland og Danmörk voru allar með fín lög. En Rúmenía, Makedónía, Króatía, Sviss (kunna ekki á gítar) og...