Hinn góðkunni og nauðasköllótti dómari, Richard Steele, hefur ákveðið að leggja skóna og þverslaufuna góðu á hilluna og hætta að dæma, eftir 30 ára feril sem einn virtasti, og jafnframt umdeildasti dómari hnefaleikasögunnar. Steele, 57 ára, hefur dæmt 167 titilbardaga á ferlinum, þar á meðal bardaga “Sugar” Ray Leonard og Tommy “The Hitman” Hearns, Marvin Hagler og Ray Leonard, og síðast en ekki síst bardaga Julio Sesar Chavez og Meldrick Taylor, þar sem Chavez sló Taylor niður og Steele...