mbl.is Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir hugsanlegum vitnum að skotárás er gerð mun hafa verið á mann á gatnamótum Sæbrautar og Kringlumýrarbrautar laust fyrir hádegi í dag. Mun fórnarlambið hafa hlotið sár á brjósti. Árásarmaðurinn, eða mennirnir, gengur laus.