Rauðu stafirnir á vekjaraklukkunni sýndu 5:50. 3 tímar í viðbót sem gæti nýst í svefn, 3 klukkutímar þangað til raunirnar halda áfram. Hann vaknaði við einhvað þrusk frammi, velti fyrir sér hver það væri sem gat ekki sofnað þessa nóttina. Það var mismunandi, stundum mamma, stundum pabbi. Núna voru það óhljóðið í vekjaraklukkunni sem vöktu hann, vekjaraklukkan var staðsett í hillusamstæðunni á móti rúminu, of langt frá til að teygja hendina út og ýta á snooze takkann án þess að velta úr...