Orð sem voru borin fram á silfurfati, handa fólki, til að nauðga, úr sjónvarpsþætti á þeirri hryllilega leiðinlegu stöð - Stöð 2. Ásamt spurningunni “Eigum við að ræða þetta eitthvað frekar eða?” *Hrollur*
Ég þoli þetta orð eiginlega ekki heldur, en jafnframt nota ég það ef ég er feimin eða fer hjá mér. Sem er mjög oft. Ég held að ég fái að heyra þetta orð samt oftar en ég segi það. Dett stundum einhvern veginn niður þegar ég heyri það.
Vááá maður. Hljómar geðveikt! Glasgow er frábær borg. Allir kurteisir og svona. Undir brúnni? Ertiggjað tala um þar sem allt er grænt? Eiginlega á móti búð sem heitir ISIS? Man ekki alveg hvað gatan heitir. Allavega er það sem ég _held_ að þú sért að tala um rétt hjá Union street og Argyle street. Mögulega _á_ Argyle street held ég.
Hvar í Glasgow? Miðbænum? Undir brautarstöðinni eða kannski á West Nile street í kjallaranum á Hellfire? Bara forvitni :P Bætt við 9. nóvember 2007 - 14:09 Úps. Haha. Las ekki alveg nótu ýtarlega :P
Eftir hvert einasta skipti sem ég hef verið götuð í vörina, hef ég rölt út og fengið mér sígarettu innan við 15 sek eftir að hafa verið götuð. Annars er sniðugt já að skola með vatni eða munnskoli eftir hverja sígarettu. Eða a.m.k. aðra hverja sígarettu.
Ég sagði aldrei að þú mættir þetta ekki, heldur að mér þykir þetta ekkert yfirnáttúrulega skemmtilegt. Gjörðu svo vel og haltu áfram elsku dúllusnúðurinn minn =) Ég sætti mig alveg við ýmislegt sem fólk segir.
Já. Þetta er eitthvað svo fjölbreytt hjá þeim. The Quitter er samt alveg sorglegasta lag sem ég hef heyrt. En síðan er t.d. eins og State Fair bara geðveikt svona kúl einhvern veginn XD Kann ekki að útskýra. En já, þetta er frábær hljómsveit!
Já, sama hér. Sumar samræðurnar hjá vinum mínum eru bara endalaust “Já sæll!” “Já fínt!” “Eigum við að ræða það eitthvað?” og svo framvegis. Mér finnst það ekkert voðalega gaman.
Maður notar þetta ekki á tunguna, maður notar bara munnskol í það og þrífur munninn sinn almennilega og með vör þá setur maður þetta bara utaná og notar munnskol að innanverðu.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..