2Tveir Baldur Benónísson, einkaspæjari, flettir upp frakkakraganum til að skýla sér fyrir norðanslyddunni. Reykjavík, borg glæpanna, opnar kaldan faðm sinn og býður hann velkominn. Baldur dreif sig af stað og arkaði gegnum snjóskaflið sem myndaði fjall milli blokkarinnar hans og barsins sem hann stundaði. Barþjónninn umlaði eitthvað og Baldur fékk sér sæti. Eftir dágóða stund við drykkju og pælingar milli himins og jarðar, hringdi rauði síminn sem var inni á klósettinu. Baldur ákvað að...