Á bílasýningunni sem stendur nú yfir í Frankfurt lyftir Lamborghini hulunni af nýjum “ofursportbíl”, eða R-GT gerð af Murcielago. Hann verður með 6 lítra V12 vél og innan við 1.100 kíló. Hann verður tilbúinn til viðskiptavina árið 2004 og verðið verður eitthvað undir 500.000 evrum (45,000,000)