Gott kvöld gott fólk. Ég fór á frumsýningu nýjustu Harry Potter myndarinnar, Harry Potter og fanginn frá Azkaban síðastliðinn miðvikudag þann annan júní. Ég verð að segja að hún vakti gríðarleg vonbrigði hjá mér. Ekki það að ég byggist við neinu gríðarlega miklu af henni. Ég er mikill aðdáandi bókanna og er Fanginn frá Azkaban meðal þeirra bóka sem ég kann utan að en ég er svo sannarlega glaður að ég hafi ekki borgað mig inná myndina. Í myndinni var söguþræðinum ekki gerð mjög góð skil...