“Liggur ykkur ekkert á? Ójú, ykkur liggur á. Ýsildúren mun finna ykkur fljótt ef þið hraðið ekki för ykkar.” “Þ-þú segir ykkur” sagði Drepfer. “Þú kemur þá ekki með okkur, er það?” “Nei kæri Stuttlungur, héðan í frá verðið þið að sjá um ykkur sjálf.” “Bahh! Eintómur þvættingur!” sagði Durgur. “Ég segi að við skellum í hann nokkrum gúlsopum að miði, þá hressist hann allur við.” “Sýndu skynsemi meistari Dvergur, mjöður gerir lítið gagn undir þessum kringumstæðum” sagði Gilvaldr grafalvarlegur....