Ok, þá kemur þetta betur út, en ef þú vilt fá út hvað þetta kostar sirka þá reiknaru út hvað pakkinn kostar með sendingarkostnaði og margfaldar það með 1,4, hef notað þessa formúlu oft og hún er yfirleitt ekki meira en 1000kr frá.
Neee, viðbeinsbrotinn, fer kannski í aðgerð eftir helgi þar sem beinin sköruðust um 4 cm. Og núna er eitt stikki hjólaferð farin í vaskin sem við vorum búnir að panta eftir 3 vikur :(
Það er ekki þess virði að vera að panta svo ódýrt dót á netinu, þú ert að borga hlutfallslega of mikið í fluttningarkostnað og umsýslugjöld að þú tapar nánast á því. Persónulega myndi ég ekki kaupa neitt af netinu nema ég væri kominn með pakka uppá svona 200 pund.
Reyndar ekki alveg rétt, þú sendir inn mynd fyrir 2 dögum (tel það ekki sem “fyrir löngu”). Það var bara rétt áður en ég sendi inn auglýsinguna fyrir DH mótið en við leyfum auglýsingum að hanga aðeins lengur uppi en venjulegum myndum til að fleira fólk taki eftir því. Akkúrat núna eru tvær myndir í bið og ætli ég samþykki ekki eina áður en ég fer núna að sofa.
Já það verður að útkljá svona mál, ég, ásamt fleirum, erum búnir að fá svo mikla leið á þessari vitleysu sem er í gangi hérna og þessar persónulegu árásir á mig sem Bjarkibmx og AndriBlend eru búnir að vera með í gangi undanfarna daga fyllti bara mælinn hjá mér. Núna verða þeir að standa við stóru orðin og rökstyðja sitt mál!
Nei ég gat ekki samþykkt einhverja betri, þetta var ein af fáum könnunum sem meikaði eitthvað sens. Og hvað er að því að spurja hvort mönnum líki pivotal hnakkar eða ekki? Ég meina þetta er bara ein tegund af hnökkum og þetta er alveg eins og að spurja hvort BMX sé málið eða ekki…
Fannst þér þær lélegar? Eða ertu bara að segja það sama og allir hinir? Síðan samþykkir Ingvar engar kannanir, ég sé um kannanirnar og hann um myndirnar.
Já ég hefði getað gert það, en svona er þetta, ég hélt að menn væru færir til að senda inn góðar kannanir en það er víst ekki hægt. En segðu mér þar sem þú hefur svona sterka skoðun á því að kannanirnar sem ég samþykki séu rusl, hvað er búið að vera að þeim sem ég hef verið að samþykkja? Svo langar mig líka að vita hvað er það sem gerir Ingvar að betri stjórnanda en ég? Ég get ekki bætt mig nema einhver segir mér hvað ég er að gera rangt.
Það eru nú fleyri en einn og fleyri en tveir búnir að hjóla þessa leið þannig að þetta er greinilega ekkert mál. Ef menn eru eitthvað valtir á fótunum þá er lítið mál að vaða þetta tveir og tveir saman til að auka jafnvægið.
Ahahahahaha! hahahaha…..aaaaaa, vá hvað mér fannst þetta fyndið svar og ég er ekki að meina það í kaldhæðni. En segðu mér, tókstu þessa auglýsingu bókstaflega?
Já vá, alveg samþykkt tvær kannanir sem sumir voru ekki sáttir við, það er nú þannig að maður verður að leyfa einhverjum skít að fara í gegn þegar það er ekkert sent inn nema skítur!
Eruði búnir að tengja efri kaflan? Annars fór ég þetta á hlunknum mínum um daginn og það var alveg ágætt, öll hjól ættu að virka fínt þarna en stærstu DH sleðarnir þurfa að hafa fyrir hlutunum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..