Tottenham hafa snúið sér að Fernando Morientes, sóknarmanni Real Madrid, eftir að hafa mistekist að ná í Rivaldo. Áhangendur Tottenham hafa verið óánægðir með stefnu Glenn Hoddle í leikmannakaupum, en hann hefur helst verið að kaupa lítt þekkta og ódýra leikmenn til liðsins. Nú síðast gagnrýndi miðjumaðurinn Tim Sherwood einnig stefnu liðsins og virðast tilraunir Tottenham til að næla í Rivaldo og Morientes vera til þess fallnar að róa aðdáendur. Vandamál Tottenham felst hins vegar í því að...