Nú vinn ég við innflutning á þessu drasli og veit hvernig þetta er. Tollur er 10% nema varan sé framleidd innan Evrópusambandsins og svokölluð Euro áritun sé á reikningnum. Enginn tollur er af ljósabúnai á hjól. Virðisauki er 24,5% sem leggst á alla upphæðina. Líka flutningskostnað. Tollskýrslugerð kostar hjá Íslandspósti 350 kr. fyrir E3 skýrslu sem er notuð þegar aðeins er um einn tollflokk að ræða og upphæð er undir 25.000 kr. Ef um fleiri flokka er að ræða eða hærri upphæð, þarf E1...