Mig hefur þrisvar dreymt að ég hafi dáið, og í öll skiptin datt ég niður af einhverju, tvisvar ofan í vatn. Fyrst þá var ég í myndmenntartíma og var uppi á klett að teikna. Síðan datt ég niður, vaknaði á leiðinni niður, en vissi einhvern veginn að ég hafði dáið í draumnum, þótt að ég hefði vaknað áður en ég skall í jörðina. Nokkru seinna dreymdi mig að ég og systur mínar vorum að leika okkur með einhvern hjúts svartan bolta á brúnni uppi á Lónsheiði (þekkti brúna mjög vel) og ég var alltaf...