Samkvæmt splunkunýrri skoðanakönnun Reykjavik.com, sem hleypt var af stokkunum þann 18. maí í formi spurningar dagsins hér á Djamm-armi síðunnar, er Thomsen vinsælasti skemmtistaður Reykjavíkur. Rúmlega þúsund manns tóku þátt í könnuninni, á því 18 daga tímabili sem hún fór fram, og sögðu 21,9% þeirra að Thomsen væri besti skemmtistaðurinn. Gaukur á Stöng kom næstur með 15,5% og Hús málarans varð þriðji með 8,3% greiddra atkvæða. Spurningin sem lögð var fyrir lesendur Reykjavik.com var...