Ég og kærasta mín eigum 6 mánaða Border Collie tík, sem við erum í vandræðum með. Við fengum hana of unga (2 vikum of ung), því að eigandinn vildi ekki hafa hvolpana lengur út af tíkinni sinni. Við gefum henni næga athygli, hreyfingu og krefjandi verkefni, en samt getum við ekki litið af henni. Þurfi hún að vera ein heima lengur en í hálftíma, þá verður hún brjáluð. Við skiljum eftir dót, bein, nóg af vatni og mat, en samt verður hún að eyðileggja eithvað. Um daginn þurftum við að fara frá...