Planið hjá mér er að fá mér Sigur Rósar engilinn á bakið, er ekki búin að ákveða hver ég vil að flúri mig, pæling ef að Santana verður ennþá á landinu, einhver sem veit eitthvað um það? Svo ætla ég að setja teikningu eftir besta vin minn á bakvið eyrað, ég bý á Akureyri og er að flytja suður og mun sakna hans hryllilega. Hann er svona ráðakallinn minn og teiknar mikið af flottum fígúrum, ætla að láta hann teikna sjálfan sig í sínum stíl, og setja á bakvið eyrað. Finnst það mjög viðeigandi.