Blómið Sem Ég Átti Hve undurblítt það var Blómið sem ég átti Er óx það í frjórri moldu Uns féll það með brotinn stilk. Hve undurblítt það var Blómið sem ég átti, Nú hulið föllnu laufi, Í hjarta mér lifir þó enn. Hve undurblítt það var Blómið sem ég átti, Sem dafnaði nær mínu hjarta En dó í fangi mér. Hve undurblítt það var Blómið sem ég átti, Er brosti við glampandi sól, Baðað í glitrandi dögg. Hve undurblítt það var Blómið sem ég átti, Blómið sem nú er dáið; Dó og hjarta mitt. Hve...