Svo tekur þú tvo skref til vinstri, snýr þér í þrjá hringi, nærð í nærföt af dauðum manni setur þau í pott. Eftir það á að setja þrjú grömm af smjöri og hræra út í það mygluðum tómötum. Oft er gott að nota líka súrsaða hrútspunga. Þegar þetta er búið þá finnur þú til hár úr hval, skegg af konu, og eitthvað af þeim einstakling sem þú ætlar að búa til dúkku. Þá er mjög hentugt að nota sveppi af fótum hans/hennar eða þú getur notað eitthvað sambærilegt. Þar með vantar einungis nál til að stinga...