Queen betri en Bítlarnir Hljómsveitin Queen hefur slegið sjálfum Bítlunum við sem farsælasta sveit Bretlandseyja og er nú skráð sem slík í Heimsmetabók Guinness. Mælistikan er fjöldi vikna á breska vinsældalistanum en þar hefur Queen setið í samtals 1322 vikur frá því að fyrsta plata sveitarinnar, Queen, kom út árið 1973. Bítlarnir eru þó ekki langt undan en plötur þeirra hafa setið í samtals 1293 vikur á listanum. Þar á eftir kemur sjálfur konungur rokksins, Elvis Presley, með 1280 vikur á...