Eve verður seldur sem hefðbundinn tölvuleikur, á geisladiski fyrir 50 dali eða um 3700 krónur en til að spila leikinn verða menn að gerast áskrifendur að „heiminum" sem leikurinn er spilaður í á Netinu fyrir u.þ.b. 900 kr. á mánuði miðað við núverandi gengi Bandaríkjadals. CCP hf. var stofnað í júní 1997 með það að markmiði að þróa nýja tegund tölvuleikja, svokallaða fjölþátttöku-rauntímatölvuleiki sem voru að riðja sér til rúms um þær mundir. Frá árinu 2000 hefur fyrirtækið eingöngu unnið...