Það sem ég held að muni bjarga þessu er að þú talir við hana og segir henni að það sé til millivegur, ef hún hafi verið svona uppáþrengjandi og hefði svo farið í heiftarlega vörn eftir að þú sagðir þetta. Ég trúi ekki að það sé bara þetta sem er að gera hana svona eins og hún er, ég hef trú á að það sé eitthvað annað að bögga hana. En það er líka til eitthvað sem heitir fjölbreytni. Þá meina ég í lífinu, ekki bara að hanga heima og bíða eftir þér, hún verður að gera eitthvað sem henni finnst...