Ég á Yamaha kassagítar, er það alveg ágætis grey. Svo á ég Squier Strat, sem var minn fyrsti rafgítar og var ágætur til síns brúks á sínum tíma. Svo á ég einn eldgamlan Hohner rafgítar, sem er nærri því antík og fékk ég hann gefins. Svo á ég Fender Stratocaster sem er að sjálfsögðu uppáhaldið mitt. Næst stefni ég á Gibson SG eða Flying-V, alltaf langað í svoleiðis.