Ég veit hvað þú sagðir, og ég misskildi ekkert ljúfan =) En veistu, núverandi fyrirkomulag er ekki að virka. Eiturlyfjafíklum fjölgar stanslaust og þessi boð og bönn eru að sanna sig gagnslaus í enn eitt skiptið, þrátt fyrir að hafa verið sett af “okkur gáfaðari mönnum”. Forræðishyggja stjórnvalda mun aldrei verða meðtekin af sauðsvörtum almúganum. Ég held að við ættum að prófa aðrar leiðir, eitthvað sem virkar. Holland er með forvitnilega stefnu í þessum málum sem virkar.