Já, það er mjög fyndið að hugsa um það að þetta gerist. Ég veit ekki hvers vegna en ég verð bara, einhverra hluta vegna, mjög tilfinningaríkur þegar ég horfi á spennandi íþróttir. Ég lamdi nú svo sem ekkert allt hérna, það var aðeins ýkt, barði nokkrum sinnum í skápinn hérna. :P Ég viðurkenni það nú samt að ég settist ekki niður síðasta korterið af leiknum, ég var þátttakandi í leiknum. ;)