Auðvitað er gæti verið gaman að sjá dóma um aðrar vélar hérna inni, en þýðir það að Pottlok eigi að hætta að breiða út sitt fagnaðarerindi? Þessari vél hefur margoft, af allmörgum, verið lýst sem einum bestu kaupum sem hægt er að gera á kvikmyndavélum. Vélin kostar 189.000kr. og stenst samanburð á við vélar á tvöfalt hærra verði. Mér finnst ekkert skrýtið að hann mæli með henni. Nú hef ég unnið mikið með Canon XM-2, ásamt því að hafa notað Sony DVCam vélar og margar útgáfur af minni gerðum...