Klikkhausar hafa skotið upp kollinum hérna oftar en einu sinni. Minnir að Kanslarinn hafi verið hér í árdaga Huga og var mjög skæður. Peace4all olli miklu fjaðrafoki fyrir 1-2 árum síðan. Hann var bókstafstrúarmaður, hélt því fram að jörðin væri flöt, gyðingar væru æðri og arabar væru réttdræpir. Eins ótrúlegt og það hljómar þá sagðist maðurinn samt vera samkynhneigður, sem biblían er ekkert sérstaklega ánægð með.