SUNNUDAGUR: Fremur hæg breytileg átt, skýjað og rigning eða slydda með köflum, einkum norðantil. Kólnandi veður, hiti 0-6 stig. MÁNUDAGUR: Suðaustan 5-10 m/s og slydda norðantil fyrri part dags en annars suðvestanátt, víða 8-13 m/s og rigning eða skúrir. Hiti breytist lítið. ÞRIÐJUDAGUR: Suðvestan 3-8 m/s og skúrir eða él sunnan- og vestantil, en léttskýjað norðaustan- og austanlands. Kólnandi veður. MIÐVIKUDAGUR OG FIMMTUDAGUR: Norðlæg eða breytileg átt, snjókoma eða él norðantil, en skýjað...