Það er kannski bara óheppileg tilviljun að sá sem virðist vera potturinn og pannan (í CS hluta Skjálfta amk) er meðlimur í Hate. Ó, já kannski líka að Hate eitt klana er með klan server sem er einn af skjalfta serverum Simnets. (Fyrir utan kannski hitt klíuklanið 3Gz). Það gæti ekkert haft með þetta að gera að Hate meðlimur adminar CS hluta Huga, sem er rekið af hverjum aftur?
Magnús Kjartansson sýndi í dagblaðinu í dag, að hann er með eindæmum vitgrannur, eða hefur ekki hugmynd um tæknibyltinguna sem er í gangi. Haft er eftir honum: “Það er hins vegar mín skoðun að þörfin hjá venjulegum fyrirtækjum til að brenna afrit af gögnum sínum fari minnkandi þar sem sífellt eykst að upplýsingar og forrit séu geymd á miðlægum gagnagrunnum sem tengdir séu í gegnum bæði innanhússnet og Netið sjálft” Undan hvaða grjóti er þessi maður að skríða ? Það vill svo til að ég vinn í...

Ég hef það frá ólygnum ([.Hate.]Peddi hvorki meira né minna) að þú þurfir “bara” viku í Færeyjum til að skilja þá. En fyrst þarftu að komast í gegnum þessa viku, það hlýtur að vera svipað og að vera í Kebblavík eða fara til Agureyris.
Hvernig væri að kveikja á heilanum og flytja þetta suður? Þetta eru engar dreifara árásir eða fordómar, er bara ekki sennilegt að það færi uppfyrir núllið á 15x stærra markaðssvæði?
Ég held að símasnúran sé lykilatriði hérna. En það er samt gaman að sjá hversu margir xpertz eru búnir að benda á allt mögulegt og ómöguleg á milli himins og jarðar annað. Byrjaðu á því að redda þér CAT5 eða Gigaspeed snúru, svo skulum við skoða protocol og internet sharing hugbúnað.
Ekki nóg með það að upphafsmenn greinanna séu ekki hate meðlimir, heldur ráðast heitustu málin sem fara á forsíðuna sennilega af fjölda svara, ekki geðþótta hl admina. (en Hate eru samt sálfhverfir monthanar :-Þ ahh ég varð)
Ok, en það er ekkert sem bannar að þú keyrir Internet connection sharing á vélinni sem þú spilar á, hefur amk engin áhrif á performance skv. minni reynslu.
Lestu ekki hvað þú skrifar sjálfur maður? “Clientinn er með win2000 enn serverinn er með win98se.” Þú segist vera með eina win98 vél og eina win2k, sem þú ætlar að samnýta eina internet tengingu á. Er hægt að skilja það sem þú skrifar öðruvísi? Ef svo er, er glórulaust annað en að nota win2k vélina sem server. Ef svo er ekki verður þú að koma þessu betur frá þér. Rubbish in - rubbish out.
Tvær tölvur, ein W2k, ein w98? Notaðu internet connection sharing á Win2k vélinni, svínvirkar. Gleymdu þesu third party dóti. (Og win98 server, gleymdirðu að taka pillurnar þínar?)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..