Já minnir mig á eitt tilvik í Mosfellsbæ í svona íbúðargötu. Ég var á eða rétt í kringum 30km, ég mætti stórum sendiferðabíl og alltí lagi með það þangað til gutti á reiðhjóli skaust út á götuna fyrir aftan sendiferðabílinn, ég með góðum viðbrögðum snarhemlaði og rétt rakst á strákinn, það sá ekkert á honum, mamma sem var með mér í bílnum tékkaði á honum. Strákurinn baðst afsökunnar en ég sat inní bílnum hálf sjokkeraður eftir þetta, ekkert gaman að valda slysi, tala nú ekki um banaslysi...