Ég var í lífsleikni í gær eða um daginn. Og talið barst frá bloggsíðum unglinga yfir í andaglas og kennarinn sagði okkur að fólk ætti ekki að fikta með anda og yfirnáttúrlegt og eitthvað í þá áttina. Ég varð mjög hneykslaður á þessu að kennari væri að segja eitthvað svona hann sagði líka beinlínis að andaglas væri hættulegt og sagði okkur einhverja sögu um stelpu sem var sett inná klepp eftir andaglas og skyggni og sagði meira að segja líka að andar töluðu í gegnum hana, hún félli í trans...