Myndin verður græn því tölvan er tengd í gegnum vídeóið, þetta er kóperingarvörn, kölluð “the green effect”. Með því að tengja hana beint í sjónvarpið losnarðu við þetta eða slökkva á vídeoinu meðan þú horfir. Sammála þeim sem skrifa hér á undan, hún er ekki frábær dvd spilari en allt í lagi ef menn hafa ekki kost á öðru. Sjálfur hef ég ekki lent í veseni með hljóðið og myndin er skárri en ég átti von á.