Tja, nú eru jólin á leiðinni, hversvegna ekki að lífga uppá hérna með einni stuttri jólasögu sem var að koma á blað fyrir einni viku :P ——— “Leiðinlegt” nöldraði Stúfur. “Hvað er að hróið mitt?” spurði Grýla með spurnarsvip. “Sko, þú veist að við bræðurnir kláruðum að gera jólagjafirnar fyrir börnin hálfum mánuði á undan áætlun, svo ég hef ekkert að gera og mér hundleiðist”, sagði Stúfur og blés mæðilega. “Ja, það gengur nú ekki”, sagði Stekkjastaur sem kom inn í hellinn. “Hellirinn er svo...