Lenti í einu vandræðalegu, þótt enginn hafi virkilega séð það nema ég (eða hvað). Þannig var mál með vexti að ég var sendur niður í þvottahús að ná í þvottinn og systir mín eltir mig niður og ég ætlaði aðeins að stríða henni og hljóp á undan henni niður og slökkti á öllúm ljósum. Ætlaði að hlaupa svo meðfram ganginum að hurðinni en allt kom fyrir ekki og ég hljóp á smá vegg sem að stóð út úr veggnum (ég veit, hljómar fáránlega) og það þurfti að sauma 4 spor í augnbrúnina =( “Hvað gerðist við...