Bíó er mjög gott 2. eða 3. stefnumót en ég myndi nú ekki kannski fara í bíó á fyrsta stefnumóti því þá talið þið svo lítið saman. Ég held að út að borða sé bara mjög sniðugt og það er ekkert lame við það. Þar getið þið t.d. spjallað um það hvað væri gaman að sjá í bíó og eitthvað þannig. Getið kíkt á American Style eða Pizza Hut eða eitthvað, held að það gæti alveg steinlegið. Þó svo að þið séuð búin að borða þá getið þið alveg setið lengur og spjallað.