Var að leika mér í eldhúsinu síðustu helgi, og ákvað að gera aðra tilraun við að gera konfekt! Þá tók ég fram öll gúmmí klakaformin mín sem ég hef keypt í ikea gegnum árin, fór út í búð og keypti rjómasúkkulaði, toblerone og toblerone hvítt. Svo bræddi ég bara hvert súkkulaði fyrir sig, og helti í formin og lét inn í ískáp þar til það var orðið hart aftur. Aðaltilraunin hér var að sjá hvort ég gæti fengið falleg konfekt úr þessum formunum, og viti menn..JÁ! Notaði fallegu hjartaformin mín,...