Mér þykir dapurlegt að sjá heimsku þess sem harmar að söngvari Sepultura sé blökkumaður. Í fyrsta lagi skiptir vitaskuld engu máli hvort góður söngvari sé hvítur, gulur eða blár. Og að nefna að þetta sé jafn asnalegt og að rappari sé hvítur. Besti rapparinn í dag er hvítur! Eminem. Þá má ekki gleyma því að frumherji metalsins, Jimi Hendrix, var blökkumaður. Hvað um meistana í Rage Against the Machine? Rasismi er ekki skoðun heldur glæpur. Glæpur sem afhjúpar heimsku af hæsta stigi.