Ég veit ekki alveg. Ég óska þess að Snape sé eitthvað meira en eiginhagsmunaseggur! En mér finnst það, eftir að hafa lesið of margar kenningar á netinu, virkilega ólíklegt! Ég er alveg týnd í þessu öllu, ég get ekki myndað mér almennilega skoðun á öllu þessu Snape máli þar sem mig langar svo ofboðslega að hann sé ‘góður’ að það truflar rökrænu hugsanirnar sem segja að það sé líklegra að hann sé nánast einungis að hugsa um sjálfan sig! Ég er í klemmu! :/