Ég hef verið að velta því fyrir mér undanfarið hvort að maraþon sýningin á FOTR, TTT og ROTK hafi verið góðar. Ég fór á FOTR og TTT fyrir ári og fannst ekki mikið til koma. Jú myndirnar eru að mínu mati með þeim betri sem að ég hef séð en salurinn gjörsamlega eyðilagði upplifunina fyrir mér (eins gott að ég hafði séð Two Towers áður). Nánast allir í salnum voru eitthvað að tala saman, fólk var að tala í símana sína, fólk var að standa upp og rjúka út úr salnum á 10 mínútna fresti og það sem...