Jamms, það getur verið mikið um hjátrú hjá okkur. Einn í hópnum okkar hendir t.d. alltaf einum d6 í einu þegar að hann er að kasta uppá stats. Aftur á móti í gær, þann hörmulega dag föstudaginn 13. þá gekk allt á afturfótunum. Við vorum að spila svona silly low powered “powerplay” og ég ákvað að gera svona Indiana Jones týpu (með svipu og alles). Köstin voru 18,12,11,10,8,6. Þetta gekk svona fram eftir kvöldinu (fékk t.d. 3 eða 4 critical failure á mikilvægum stöðum…..!)