„Sá sem þetta vottar segir: „Já, ég kem skjótt.“ Amen. Kom þú, Drottinn Jesús! Náðin Drottins Jesú sé með öllum.“ Við þessi síðustu orð á síðustu blaðsíðu síðustu bókar sem ég mun lesa legg ég frá mér ljósbláa eintakið af Nýja Testamentinu í útgáfu Gídeonsfélagsins sem lyktar enn eins og nýprentað glanstímarit. „Hvar ertu þegar þín er þörf Jesú, guðs sonur?“ muldra ég bitur út í svart tóm herbergissins, sem viðkunnalegur náttborðslampi gerir þó auma...