Ótrúlegt hvað það tekur stuttan tíma að hreinlega taka einn mann af lífi í fjölmiðlum! Innan við viku. Hvað er að gerast spyr ég?! Er virkilega svo lítið að gerast í landinu að flest allir fjölmiðlar landsins fjalli um “Árna Johnsen málið” í flest öllum fréttatímum seinustu daga. Hvað með að “allir menn séu saklausir uns sekt þeirra sé sönnuð.” Menntamálaráðherra kallaður í beina, Davíð Oddson með blaðamannafund, Associated Press fjallar um spillingu á Íslandi - hvar er eldurinn? Syndlaus...