Við kynntumst í skólanum, hann settist við hliðina á mér þar sem hann kom of seint í tíma og ég ný í bekknum… og sendi mér rosa sætan miða : ,,Hæ, ég heiti X. Hvað heitir þú?“ ,,X” skrifaði ég og brosti feimnislega, en þó nokkuð upp með mér að svona sætur strákur sæti við hliðina á mér og skrifaði mér meira að seigja skilaboð í tíma! Eftir það fórum við saman í hádegishléinu að skoða listaverkin á Ingólfsvelli og endaði ég svo á því að setjast í andaskít hjá tjörninni, en hann fullvissaði...