Hef lengi verið að velta því fyrir mér hvort það sé heppilegt að koma með þessa grein hingað inn, en fyrst meira en 80% af öllum þeim sem stunda þetta áhugamál telja sig nútíma útgáfu af Dr. Love ákvað ég að slá til. Þannig er nefnilega mál með vexti að minn besti vinur, sem heitir Helmut er hrifinn af stelpu. Þessi stelpa er víst ágætis skinn, soldið steikt á köflum en annars allt í lagi með hana. Hann byrjði að tala við hana fyrir sirka 2 vikum, eftir ball, þar sem þau voru bæði vel hífuð...