Hér er það sem mér finnst. Fólk einblínir of mikið á það hvernig samkynhneigðir stunda sitt kynlíf og finnst það hvernig þeir stunda kynlífið ekki ,,eðlilegt“ og finnst þeir sjálfir ekki ,,eðlilegir” fyrir að laðast að sama kyni. En svo er náttúrulega ekki hægt að segja um hvað er eðlilegt og hvað ekki. Er t.d. eitthvað eðlilegra að vera ljóshærður en dökkhærður. Þetta er nákvæmlega eins að mínu mati. Ég hef ekki fordóma gagnvart dökkhærðu fólki og ég hef ekki fordóma gagnvart samkynhneigðum...