Langar nú einnig að benda á að það er yfirleitt betra að notast við betri heimildir en ebay. En vitaskuld er það rétt að þó það sé miðað við erlendar tölvuverslanir þá er það nú yfirleitt að borga sig að panta hlutinn inn að utan. Dæmið snýst hinsvegar við ef að hluturinn bilar, þá borgar það sig yfirleitt að hafa keypt hann hér heima.
Ég er orðlaus.. Sá hana um helgina þar sem hún ljómaði af hressleika. Hvíl í friði Lovísa :/ Mínar innstu samúðarkveðjur fara til vina hennar og fjölskyldu Kveðja, Yngvi Frey
Jésús. Maðurinn hlýtur að hafa verið útúr dópaður í þættinum. Ekkert annað gæti afsakað svona hegðun. Síðan kemur það á móti hver afsökunin hans væri þá fyrir að vera dópaður fyrir svona viðtal.
Vitaskuld er það alvarlegt mál ef að sjúkraflutningamenn telja fólk bara vera grínast og taki starfi sínu ekki alvarlega. Þó verð ég að segja að vitaskuld sagði hann þér að taka því rólega, taka nokkur skref aftur og leyfa honum að vinna vinnuna sína því að vitaskuld er þetta starfið hans og þú ert “jói” á barnum sem er búinn að fá sér nokkra bjóra. En ekkert afsakar það að taka starfi sínu léttúðlega þegar um er að ræða heilsu fólks.
Ef að fyrirtæki eru með fagmenn í vinnu þá eru þeir ekki settir í síma til að svara spurningum fólks. Hinsvegar er til www.hjalp.is - þar færðu aðstoð tæknimanns við vandann hjá þér og borgar 100kr á mínútuna fyrir það líka.
Ég er einmitt með sömu þarfir, þ.e. vill bara hafa þetta basic og keypti mér silfraða HP lyklaborðið. Þurfti nú ekki að leita lengi, fann það í Tölvulistanum :)
Þetta er hreint og beint fáránlegt að halda því fram að núna muni þeir sem hafi verið með barnaklám og nauðganir á tölvunni hjá sér alltíeinu fatta að vara sig og encrypta þessi gögn núna. Eins og þeir fatti það núna að lögreglan mun gera eitthvað í málinu? Kommon, hugsaðu smá.
já, fólk virðist gleyma ice og murk í þessari upptalningu sem áttu senuna 1999. Fremstur í broddi fylkingar í herbúðum MurK var einn klikkaður pjési með mp5 og laser! ;) Mbk, Fyrrum skjálftameistari í AQTP.
Ok, 1v1 hefðuð þið alveg getað unnið. En kommon, ekki sjálfsblekkingu.. ég er meistari TDM og tók mig einn leik að lesa ykkar leik bara, ég var ryðgaður og biðst afsökunnar.
Geggjuð grein hjá þér. Sumir taka texta af öðrum síðum og copy paste'a hingað en þú gengur skrefinu lengra :) Og svo líka slappt að vera stela af mér nafninu.
Nei ok, ég er bara orðinn steiktari en allt, ég horfði á þetta demo í svona 10-15 mín í góðum fíling þangað til ég gafst upp og ýtti á músartakkann. Gmg. GG ég.
Ég skildi í fyrstu ekkert hvað væri málið, þ.e. hvernig hægt væri að skrifa svona grein, en fyrst þú ert 12 ára þá skil ég þetta svosem. Kemur allt með aldrinum. Einnig vekja athygli á því að umrætt flugfyrirtæki heitir ekki Icelander.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..